| Rannsóknagagnasafn Íslands, RIS, er safn rannsóknaverkefna sem unnið
er að hér á landi og niðurstöður rannsókna- og þróunarverkefna. Að safninu
standa Rannsóknamiðstöð Íslands, Háskóli Íslands og Iðntæknistofnun. Með tilkomu RIS er í fyrsta skipti hægt að nálgast á einum stað upplýsingar um rannsóknarverkefni á tölvutæku formi. Safnið er gagnvirkt á Internetinu. Í gegnum heimasíðu RIS er hægt að skrá inn verkefni, niðurstöður og leita í gagnasafninu og nálgast þannig ýmsar upplýsingar rannsókna á Íslandi. Gagnasafnið felur í sér ítarlegar upplýsingar um rannsóknarverkefni. Helstu þættir sem skráðir eru um hvert verkefni eru heiti þess, markmið, útdráttur og þátttakendur, auk ýmissa tölulegra upplýsinga um þau. Gagnasafnið nýtist vel þeim sem að rannsóknum starfa. Unnt er að leita eftir samstarfsaðilum, fá yfirlit yfir stöðu þekkingar á tilteknu rannsóknarsviði og margvíslegar tölulegar upplýsingar. Safnið nýtist einnig vel stjórnmálamönnum, fjölmiðlum, fyrirtækjum og almenningi. Rannsóknagagnasafn Íslands er byggt á evrópskum stöðlum um söfn af þessu tagi. Safnið mun tengjast evrópskum gagnasöfnum, þannig að leit í þeim er samtímis leit í RIS. Þessi tengsl gefa aukna möguleika á alþjóðlegu samstarfi í rannsóknum og nýtingu niðurstaðna. Safnið er öllum opið án endurgjalds til skráningar og leitar. Möguleikar eru á ítarlegri úrvinnslu gagna úr safninu í samráði við aðstandendur RIS.
|